Ahhhh... gott að vera búin í vinnunni í dag og mega skríða upp í rúm.
Ég er svakalega spennt, því að ég er að á morgun fæ ég niðurstöður úr tilrauninni sem ég gerði yfir helgina. Ég er alveg bara með fiðring í maganum. Það má samt ekki halda fyrir mér vöku, því ég þarf að mæta klukkan sjö á labbið á morgun ef ég á að geta fengið niðurstöðurnar fyrir fundinn með henni Carol.
Ég vona bara að það verði búið að opna Starbucks á morgun klukkan sjö, þannig að ég fái sterkt kaffi í morgunsárið.
-------
Djöfull er ég annars á móti einkavæddu heilbrigðiskerfi. Ég skal sko segja ykkur það að maður fær ekkert betri þjónustu hér en heima og verðið á allri þjónustu er sprengt upp, því tryggingafélögin borga. Og svo er eitt sem alltaf gerist þegar reikningurinn er orðinn X hár: Tryggingafélögin neita að borga og reyna að finna afsökun til þess. Fyrra fyrirtækið sem sá um að borga sjúkraþjálfunina hjá mér neitaði að borga af því að það var líklegt meiðslin mín hafi verið til staðar áður en ég flutti hingað. Ekki að þeir hafi haft eitthvað til sönnunar því. Nú er ég komin með annað tryggingafyrirtæki, og um leið og þeir áttu að fara að borga vildu þeir láta endurmeta meiðslin hjá mér og fá skýrslu um það hversu illa ég fúnkera í daglegu lífi. Bleh... og þetta borgar fólk hundruð þúsunda fyrir á ári! Þá vil ég nú frekar íslenskt ríkisrekið heilbrigðiskerfi.