Sunnudagur, 20 október, 2002
Yndislegt líf =)

Þetta er sko búið að vera meiri þrusudagurinn! Ég var til klukkan nær tvö í gærnótt á labbinu, kom heim og fór að sofa. Í morgun fórum við svo á fætur um hálfátta og höfðum okkur til í göngu. Melissa og Adelene komu stuttu seinna og við brunuðum í leigubíl út á lestarstöðina á 125 stræti. Það var sko mikið ódýrara og fljótlegara en subway.

Leiðin lá að Breakneck Ridge Trail, þar sem við klifruðum upp brattan hrygginn og svo eftir slóðum niður í dal austan megin við hryggin, en í fyrra fórum við Mörður vestan megin. Við gengum nú ekki hratt, veðrið var alveg frábært, sól skein í heiði en samt var ekki of heitt.

Það sem bar fyrir augu okkar var meðal annars eyðibýli inni í miðjum skógi og svo skátamiðstöð, þar sem voru skilti út um allt sem hótuðu öllu illu ef maður færi um landareignina! Við gengum í trjágróðri nær allan tímann og akörnin smullu niður í jörðina allt í kringum okkur. Melissa fékk meira að segja fjögur í hausinn í einu.

Í nesti fengum við svo alveg hreint ljúffengt túnfisksalat sem Mörður bjó til, og brauð ásamt allskonar treilmixi að venju.

Við gengum í samtals sex tíma, sem var alveg passlegt, allavega fyrir mig. Ég finn greinilega fyrir því að hreyfingarleysi undanfarinna mánaða hefur haft sitt að segja. Ég hafði mun meira úthald í fyrra!

Eftir að við komum heim drifum við Melissa okkur svo í jógatímann okkar og strekktum á skrokknum. Það var alveg prýðilegt, veitti svo sem ekki af. Að jógatíma loknum dreif ég mig svo á labbið í tvo tíma til þess að klára tilraunina sem ég byrjaði á í gær.

Nú er ég hins vegar nokkuð búin á því, en á enn eftir að uppfæra heimasíðuna sem ég sé um hjá skólanum fyrir vikuna.

Posted by erna at 11:00 EH