Bleh, bleh.. hrmpphhhhh.... Ég var að klára labbvinnuna og er að fara að skríða heim. Ég vaknaði allt of seint eins og alla daga þessarar viku og mætti því ekki fyrr en um ellefuleytið í vinnuna. Þar að auki var ég að keyra 20% akrílamíðgel (ef þið vitið ekki hvað það er, hugsið bara Váááááá......) og það tók hvorki meira né minna en tíu klukkutíma.
Á meðan ég beið dundaði ég mér við ýmsa hluti, eins og lestur og keyrslu á venjulegu geli. Svo var fundur með rektor skóladeildarinnar sem ég er í. Það var ansi herskár fundur, þar sem við kvörtuðum sáran yfir því að styrkurinn okkar væri of lágur. Við fáum 23000 dollara á ári, en þeir sem eru í deildunum "uptown" fá 24500 á ári. Svo kvörtuðum við líka yfir húsaleiguhækkununum sem áttu sér stað í sumar.
Afsökunin fyrir húsaleigunni var fáránleg. Sko, Columbia gerði future samning um olíuverð til þess að tryggja sig fyrir verðhækkunum á olíunni fyrir árið, en svo lækkaði verðið á olíu á markaðnum, þannig að þeir enduðu á því að borga hærra verð en markaðsverð fyrir hana. Þar af leiðandi þurfti að hækka leiguna. Jesúsminnalmáttugur segi ég nú bara. Halda þeir að við séum með froðu á milli eyrnanna!
Eftir þennan fund fór ég svo í gymmið. Ég var virkilega, virkilega vond stelpa og fór á hlaupabrettið í hálftíma, í trássi við allt sem Libbý leyfir mér. Ég bara stóðst ekki freistinguna. En gvuðmundur almáttugur hvað ég er komin í lélegt form. Ég er eins og spagéttí núna. Ef mér líður OK á morgun ætla ég sko bara að halda áfram að skokka svona, því það er svo GOOOOOTTTTTTT.... Ég bara er ekki týpan í allt þetta sund og jóga. Það getur verið að það sé svaka gagnlegt og allt það, en frekar svona bara BORING.
En nú ætla ég að drífa mig heim og smella kossi á kinn bóndans.