Miðvikudagur, 16 október, 2002
Rok og rigning

Það er skítaveður úti. Mig langar mest af öllu bara að kúra hér inni og fara ekki út fyrir hússins dyr í dag! Ehemm.. ég held mér færi nú samt fljótt að leiðast.

Ég fór í arts and crafts club til Loru í gær, og við sátum og spjölluðum og slúðruðum í marga, marga klukkutíma. Þetta varð næstumþví að svona alvöru saumó. Eini munurinn var að við vorum ekki að borða heimatilbúnar hnallþórur, heldur kínverskan teikát.

Nú fer að styttast í Halloween. Það er ekki seinna vænna en að fara að undirbúa sig. Ég er að minnsta kosti búin að ákveða hvernig ég ætla að klæða mig upp. Ef það verður partý meðal skólafélaganna, þá ætla ég að vera jólakötturinn. Já, þið heyrðuð rétt. Það erfiðasta við það gerfi er að ég þarf að borða lítil börn.....

Posted by erna at 10:14 FH