Ýkt kúl! Það er sko kominn pési á labbið hjá mér, þannig að nú get ég bloggað af labbinu. Ég nennti aldrei að setja íslenskuna upp á makkanum.
Mánudagar eru skemmtilegir, því þá er mánudagsfyrirlestur í deildinni þar sem gestafyrirlesarar halda ræður. Í dag talaði John Petrini um DNA viðgerðir. Þetta var mjög skemmtilegur fyrirlestur og ég varð margs fróðari.
Seinnipartinn var svo vikulegur labbfundur, þar sem Andrew talaði. Það var fínt, en ég var reyndar svo svöng að ég einbeitti mér lítið.
Þegar þessir fyrirlestrar voru búnir allir saman, var klukkan orðin fjögur, þannig að það var ekki seinna vænna en að fara að gera eitthvað af viti.
Síðan þá er ég sko búin að setja upp eitt transfer, naglalakka smásjárgler á smásjárgler, keyra gel og staðfesta að bakteríurnar mínar tjáðu prótínið mitt, lita tvö gel, skrifa í labb-bókina, splitta hamstursristilskrabbameinsfrumunum mínum. Þar að auki er ég búin að skipuleggja vinnuna hjá mér fyrir vikuna, þannig að ég ætti að ná að sýna einhverjar niðurstöður á þriðjudaginn eftir viku þegar ég hitti Carol á fundi. Núna ætla ég hins vegar heim að borða pasta með Merði. Það er að segja þegar ég verð búin að ramma inn gelið mitt =)
Vúps, gleymdi næstum! Kíkið á bloggið hennar Ellu Maju. Loksins fór hún að blogga!