Það er gaman að sjá hvað margir tjá sig á vefnum um orðið blogg. 1 2 3 4 5 6
Ég hef áður sagt að mér finnst orðið blogg alveg stórgott. En þá verð ég nú líka að segja að ég er ekki fylgjandi íslenskrar hreintungustefnu. Mér finnst sko í góðu lagi að nota tökuorð þegar þau eru þjálli en misgóð gömul íslensk orð sem flengt er fram í örvæntingu þeirra sem ekki vilja skíta íslenskuna út með útlensku.
Mér finnst reyndar flott þegar búin eru til ný orð sem virka, en málið með orð eins og annáll yfir blogg er bara hreinlega að það hefur á sér of formlegt yfirbragð og er ekki mjög þjált í notkun. Blogg eins og þetta sem ég er nú að skrifa á nú bara að vera frekar hversdagslegt og kasjúal.
Fólk um allan heim stundar það að blogga og notar orðið blogg um þá iðju. Hvers vegna þurfa Íslendingar að vera svo merkilegir með sig að geta ekki notað sama orð og aðrir yfir fyribæri sem á tilvist sína algerlega að þakka Veraldarvefnum?
Mér sýnist fólk reyndar skiptast í tvær fylkingar, með eða á móti orðinu blogg, eftir aldri (með undantekningum þó), þeir eldri vilja skrifa annála eða leiðarbækur, en þeir yngri vilja bara blogga í friði.