Þá er ég nú aftur skriðin á fætur á rigningardegi. Kósí. Mig langar mest bara til að kúra upp í sófa undir teppi í dag. En neibb, ég þarf að losa prótínið mitt af súlunum. Það er reyndar alveg gaman, ég bara kem mér ekki af stað...
Brrr... það var kalt að vinna við prótínhreinsun inn í kæliherbergi í gær, af því að ég labbaði í skólan í hellirigningu. Það var ekki þurr þráður á mér þegar ég kom inn. Brrrr.. bætir ekki alveg úr skák að þurfa að vinna við 4°C.
Mörður keypti hins vegar handa mér regnhlíf í gær, þessi elska. Þannig að nú get ég örugg hætt mér út í regnið án þess að óttast nokkuð.