Föstudagur, 11 október, 2002
Góðan daginn.....

Þá er ég loksins skriðin á fætur á þessum rigningardegi. Það er nú pínu kósí að liggja upp í rúmi og hlusta á regnið fossa niður úti.

Við fórum á bjórkvöld á Telephone bar í gær og hittum íslenska gengið eins og það leggur sig. Það var stuð að vanda og heilsan eftir því í dag.

En það þýðir ekkert að kvarta því ég þarf að hreinsa svosem eins og eitt stykki prótein í dag. Það besta við að vera nemi er að maður getur haft sinn vinnutíma eins og manni hentar. Í dag langaði mig að sofa út og þá vinn ég bara fram á kvöld =)

Posted by erna at 11:14 FH