Þriðjudagur, 8 október, 2002
=)

Jeijjj... ég var að koma úr stelpuföndurklúbbnum. Það var sko stuð. Við máluðum á gler í allt kvöld, pöntuðum afganskan mat og drukkum ódýrt rósavín... jummí!!!

Ég fékk líka stjörnu í kladdann hjá sjúkraþjálfanum mínum í dag af því að ég var svo dugleg að lyfta höndunum þegar ég var með bakið upp við vegg.. jeijjj... Hún sagði sko að það hefði enginn sem hún veit um gert þessa æfingu svona vel... Bleh.. mér finnst þetta nú pínu sorglegt, sko, að vera að gera svona Möllers-æfingar á morgnana í staðinn fyrir að hlaupa svosem eins og átta kílómetra.

Það leiðinlega í dag var að það var fyrsti dagurinn þar sem það var ívið of svalt til þess að vera á stuttermabol úti. Ég held það sé að koma haust.

Posted by erna at 11:16 EH