Ég var að uppgötva það að þegar ég breytti blogginu þannig að dagsetningarnar kæmu inn á íslensku fylgdi sá böggull skammrifi að tímasetningarnar eru á alveg fáránlega amerískri íslensku. Hver stendur eiginlega fyrir þessu? Í stað þess að tímaseningin komi eins og áður þar sem heili tíminn er frá 1 upp í 24 stendur í staðinn EH og FH eftir því hvort færslan er skrifuð fyrir eða eftir hádegi! Rétt eins og kaninn notar am og pm.
Ég er ekki sátt við þetta því mér finnst þetta ljótt. Veit einhver MT notandi hvernig ég get breytt þessu?
Við Binna skelltum okkur í sund áðan, og svo á fyrirlestur sem fjallaði eiginlega á einfaldan hátt um heimsmynd stjörnufræðinnar, eða strjarneðlisfræðinnar.
Það var mjög gaman á fyrirlestrinum. Fyrirlesarinn var David Helfand sem er prófessor við Columbia. Hann er alveg frábær ræðumaður, og á köflum fannst mér ég frekar vera stödd á svona "stand-up" en á fræðifyrirlestri. Hann varði mestum tíma sínum í að útskýra hverjar hugmyndir vísindamanna um stærð og eðli alheimsins hefðu verið og hvernig þær hafa breyst á undanförnum árum og endaði svo á því að útskýra hvernig vísindamenn væru búnir að finna út að heimurinn samanstæði að mestu leyti af efni sem við sæjum ekki og skynjuðum ekki svokölluðu "dark matter".
Við erum semsagt ekki nafli alheimsins, langt frá því að hans mati, því við erum ekki einu sinni úr samskonar efni og mestur hluti alheimsins. Hann klykkti út með því að segja að í alheimssamhengi værum við eiginlega bara snefilefni.
Kúl! Sydney Brenner var að fá Nóbelinn.. Ekki að það komi neinum á óvart =)
Hann var einmitt einn af frumkvöðlum erfðafræðirannsókna á módeldýrunum C.elegans sem á íslensku myndu vera ormar.