Sunnudagur, 6 október, 2002
Blessuð dýrin

Ég gleymdi alveg að segja frá því sem fyrir augu bar á leiðinni á grænmetismarkaðinn í dag. Adelene stóð flissandi á tröppunum hjá mér og sagði mér að í dag væri dagurinn sem fólk gæti farið með dýrin sín í St. John divine kapelluna til þess að láta blessa þau. Við ákváðum því að ganga Amsterdam avenue framhjá kapellunni, sem er hér á horninu.

Við kirkjuna var fólk statt með gæludýrin sín, stór og smá. Mjög mikið var um hunda, en þar var einnig kona með risapáfagauk á öxlinni, páfuglar í búri, jafnvel kýr og fleiri húsdýr. Við innganginn á kirkjunni var maður með sauðkind í rauðri ól. Öll dýrin sem þegar höfðu verið blessuð voru með grænan krans um hálsinn. Sætust fannst mér nú samt lamadýrin, en þau stóðu tvö, spök fyrir framan kirkjuna með grænu kransana sína um hálsinn og leyfðu fólki fúslega að klappa sér. Eigandinn sagði mér að það væri í lagi að klappa þeim svo framarlega sem maður snerti ekki á þeim andlitin. Gvuð þau voru svo mjúk og svo mikil krútt =)

Ég hef heyrt sögur af því að í fyrra hafi einhver mætt með fíl á svæðið. Ég sel það nú ekki dýrara en ég keypti það.

Posted by erna at 11:05 EH
Grænmeti

Ég vaknaði seint í morgun, tímaávinningurinn af Íslandsför er alveg runninn út í sandinn.

Við fórum nefnilega til Binnu í gærkvöldi og sátum þar fram á nótt við huggulegt spjall og p itsuát.

Í dag fór ég svo á labbið í smástund, og svo skelltum við Adelene okkur á grænmetismarkað niðri á 77. stræti. Þar keyptum við butternut squash, gul zucchini, alvöru epli, svona sem vaxa í garðinum hjá fólki, svona litlar amerískar gúrkur, eplasafa og hvítt eggaldin.

Í kvöld þegar ég er búin að synda ætla ég svo að elda dýrindis krásir úr þessu girnilega grænmeti. Mér finnst alveg svakalega gaman að versla grænmeti hérna. Nú loksins get ég eldað allar uppskriftirnar úr Moosewood bókunum mínum sem ég hef aldrei getað keypt hráefni í. Ég er líka að hugsa um að kaupa grasker fyrir Halloween og skera það út og setja kerti inn í það.

Posted by erna at 06:20 EH