Laugardagur, 5 október, 2002
Frábær föstudagur

Þetta er aldeilis búið að vera fínn dagur.

Ég er búin að vera að vinna í því að skipuleggja vinnuna mína betur undanfarið. Ég er loksins búin að fá mér dagbók þar sem ég get skipulagt vinnuna hjá mér nokkra daga og vikur fram í tímann, eins og ég var vön að gera hér áður. Það virkar ekkert smá vel. Það er ótrúlegt hvað svona lítill hlutur getur skipt miklu máli um það hversu miklu maður kemur í verk og hversu betri vinnan manns verður.

Eftir vinnu fórum við Mörður ásamt nokkrum krökkum í deildinni, út að borða á víetnamskan stað á nítugasta stræti og Amsterdam Avenue. Það var mjög fínt, alltaf gaman að prófa nýja staði til að borða á =)

Eftir matinn fór Mörður og hitti Einar Frey, en ég og restin af genginu, sem voru Adelene, Lora, Melissa, Andrew og Brook, fórum heim til mín og sötruðum léttvín og spjölluðum. Þau voru yfir sig hrifin af kortinu af Bandaríkjunum sem Mörður hengdi aftur upp í dag (en það var upphaflega sett upp að fyrirmynd Stellu og Kristjáns).

Ég greip tækifærið og sýndi þeim Íslandspúsluspilið sem Amma Gógó gaf mér um jólin. Þau voru jafnvel enn hrifnari af því og fannst alveg frábært að þar væru púsl í laginu eins og hestur og tvö eins og fiskar. Þau skemmtu sér líka í dágóða stund við að bera fram íslensku örnefnin á kortinu og dáðust að ð og þ bókstöfunum. Þeim fannst ð alveg sérstaklega spennandi bókstafur. Ég sýndi þeim líka myndir úr gönguferðunum okkar Marðar og heillaði þau upp úr skónum. Undirspilið var auðvitað Sigur Rós og Gling Gló.

Það leiðinlega var nú samt að mér tókst að hella fullu rauðvínsglasi yfir Andrew, sem auðvitað var í ljósum buxum, og sófinn okkar fékk sinn skerf af rauðu víni líka. En mér var sagt að hafa ekki áhyggjur af því, því að Lora á eitthvað undraefni (amerískt náttúrulega), sem nær öllum blettum úr. Sjáum nú samt til hvernig það fer...

Ég komst líka að því að ég gekk undir nafninu "Iceland, part II" í deildinni löngu áður en skólinn yfirleitt byrjaði í fyrra. Þeim fannst nefnilega bráðsniðugt að það væri annar Íslendingur að koma í deildina. Það var Jóhanna sem var víst "Iceland, part I". Þau bíða spennt eftir "Iceland, part III", þannig að ég hvet alla íslenska líf- og lífefnafræðinga til þess að sækja um í deldinni okkar!

Á sunnudaginn ætlum við Adelene svo að fara á grænmetismarkað niðri á u.þ.b 70. stræti. Hún komst nefnilega að því að mig langar svo að prófa að elda eitthvað úr "Butternut squash" og ætlar að hjálpa mér að velja mitt fyrsta eintak af einu slíku =) Hún var líka alveg æst í að fara með okkur út að borða á amerískan veitingastað sem sörverar svona ekta amerískan "comfort food". Hún trúði þvi ekki alveg að ég hafi aldrei smakkað Macaroni and cheese!

Á þriðjudaginn ætlum við stelpurnar að hittast heima hjá Loru í svokölluðum "Arts and crafts club", en það gæti útlaggst sem saumaklúbbur. Eini munurin á honum og dæmigerðum íslenskum er að stelpurnar leggja sig allar fram við að föndra í stað þess að sitja og borða og spjalla.

Spennandi dagar framundan sýnist mér!

Posted by erna at 02:43 FH
Íslenskir dagar!

Sko! Dagsetningarnar eru á íslensku. Þökk sé Ragnari =)

Posted by erna at 02:21 FH