Jæja, þá er ég búin að jafna mig í augunum, þökk sé hinu töfralyfi Tobramycin. Mörður er búinn að vera dropaskammtari í tvo daga, þar sem ég hitti ekki nógu vel í augun á mér.
Ég er heima í hádegismat svona til þess að Merði leiðist nú ekki of mikið, en er á leiðinni á labbið aftur.
Veit einhver um góða bók þar sem ég get lesið mér til um FPLC? Er kannski alveg nóg að lesa Instrumental Analysis eftir Skoog?
Ég er sko að fara að prófa nýjar aðferðir við að hreinsa prótínið mitt.