Miðvikudagur, 2 október, 2002
Hættur farinn...

Ég hætti störfum hjá Ice(cold)Express í gær. Ég notaði daginn í dag til að sækja um nokkur störf og skellti mér svo auðvitað á barinn í dag. Þar var verið að sýna leik Liverpool og Spartak. Það þarf ekki að fara mörgum orðum um úrslit þar sem allir sem hafa áhuga vita þau nú þegar. Við erum að fara upp til Josh og Melissu að horfa á WW og í home delivery á einhverjum gæða mat.

Posted by mordur at 08:07 EH
Noja

Það er nú meira hvað ég get verið nojuð stundum. Ég sat hér í mestu makindum og var að færa inn einkunnir í líffræði kúrsinum sem ég er TA fyrir, þegar það fljúga yfir þær hávaðasömustu flugvélar sem ég hef heyrt í. Það var hreinlega eins og þær væru bara hér úti í garði.

Áður enn ég vissi var ég búin að kasta mér í gólfið með hendur yfir höfði mér. Nokkrum sekúndum síðar voru vélarnar flognar út í buskann og ég stóð upp og hló vandræðalega að kjánaskapnum í sjálfri mér. Ég hélt svo áfram að vinna eins og ekkert hefði í skorist.

Nokkrum mínútum síðar hringdi svo síminn. Það var Josh, og hann bað mig að kveikja á sjónvarpinu og athuga hvort það væri eitthvað í gangi.... Úff, hjartað í mér tók kipp og ég kveinaði: "Oh, my God, do you think there is something terrible going on".. þar sem ég fálmaði eftir fjarstýringunni í óðagoti mínu.
En á CNN var bara einhver fúll umræðuþáttur um væntanlegar árásir á Írak og ekkert hræðilegt virtist vera að gerast. Hjúkk, ég andaði léttar.

Josh sagði mér að þetta hefðu verið F16 vélar sem flugu yfir, en þær fljúga venjulega ekki yfir eyjuna, og þess vegna hafi hann verið forvitinn og viljað vita hvort eitthvað væri í gangi.

En mikið ofboðslega varð ég hrædd í andartak.

Posted by erna at 01:27 EH
Eymingi með hor og slef

Ég fór til læknis út af augunum á mér í gær og fékk augndropa til þess að setja í þau. Hann reyndi að mæla í mér sjónina, en ég táraðist svo mikið að ég sá ekki neitt. Ef hann hefði tekið mark á mælingunni hefði hann örugglega látið mig fá blindrastaf áður en ég labbaði út. Það hefði nú bara verið fínt. Krypplingur með blindrastaf. Neii.. ég segi nú bara svona.

Seinni partinn í gær var svo komin sýking í vinstra augað líka, þannig að í dag sit ég bara heima og reyni að lesa. Maður verður nú að gera eitthvað gagnlegt er það ekki?

Í dag er fjórði dagurinn sem ég hef nokkurn tíman verið frá vinnu vegna veikinda. Ég hef alltaf verið svo hraust, engar flensur og ekkert bitið á mér. Ég fékk seinast hita þegar ég var í þriðja bekk í MR, nánar tiltekið þann 23. janúar 1991.

Posted by erna at 10:51 FH