Þriðjudagur, 1 október, 2002
Byrjuð aftur

Jæja, þá er nú kominn tími til þess að byrja að blogga aftur eftir smá frí.

Ég skrapp til Íslands í síðustu viku og kom aftur heim í gær. En nú tekur labbvinnan í Columbia við aftur á fullu. Það er nú alveg ótrúlegt hvað maður getur dottið út á einni viku, ég bara man varla hvað ég ætlaði að fara að gera í dag á labbinu. Sem betur fer vissi ég að það væri nú hætta á þessu, þannig að ég skrifaði langan verkefnalista sem bíður eftir mér á skrifborðinu mínu.

Það hefur óneitanlega vissa kosti að koma svona frá Íslandi, því að þó ég hafi sofið frameftir nær alla daga heima, þá er tímamunurinn það hagstæður að ég spratt á fætur klukkan sjö, alveg útsofin. Hins vegar er ég ekki enn mætt í vinnu núna klukkan átta, því að ég lít út eins og ég hafi lent í slagsmálum í gærkvöld.

Ég vaknaði pínu rauðeygð á hægra auga í gærmorgun, sem ekki er mikið tiltökumál, en um leið og flugvélin hófst á loft í gær tók augað að bólgna og sökkva. (Flugvélarfarþegum til mikillar undrunar, nóg gátu þeir að minnsta kosti glápt á mig á meðan þeir biðu eftir því að komast á klósettið.) Mér brá nú reyndar sjálfri þegar mér var litið í spegil, það var ekki fögur sjón. Þetta er nú ekkert alvarlegt held ég, en ég ætla samt að kíkja til hennar Marge Miller úti á heilsugæslu og heyra hvað hún segir.

Maður er nú orðinn meiri auminginn. Fyrst kemst ég ekki í vinnuna vegna þess að ég er að bíða eftir því að heilsugæslan opni þannig að ég geti pantað mér tíma. Svo þarf ég að fara þangað í dag og þar að auki að hætta snemma til þess að fara í sjúkraþjálfun.

Posted by erna at 12:11 EH