Vá, ég er ekkert smá fegin að vera ekki í vinnu sem krefst þess að ég sitji fyrir framan tölvuskjá allan daginn. Ég er búin að þurfa að sitja mikið við tölvuna undanfarna daga og svara tölvupóstum frá nemendum í Aðgangi að líffræði hér í liffræðideildinni. Svo er ég búin að vera að uppfæra upplýsingarnar á heimasíðunni og senda kennurunum tölvupósta með nýjustu stöðu mála. Þetta er hreint ekki leiðinlegt, pínu vesen, en mér finnst oftast bara gaman að veseni. Ég er hins vegar hæstánægð með að gera þetta bara núna fyrstu vikur misserisins, og svo bara annað slagið fram að jólum. Það bara á svo mikið betur við mig að vinna með höndunum og vera á ferð og flugi allan daginn heldur en að sitja fyrir framan svona vél allan daginn og véla brögð.
Ég hlakka líka ferlega til morgundagsins því þá fæ ég að skoða frumurnar mínar í smásjánni. Úúúú. Ég er búin að setja flúrljómandi mótefni á frumurnar, en þetta mótefni þekkir litla sæta prótínið mitt. Þess vegna er ég að vona að frumurnar verði alveg hreint ljómandi grænar.
Eftir smásjárskoðun fer ég svo með Adelene á kajak niðri við höfn. Það verður örugglega stuð.