Aldrei hefði mig grunað að Bandaríkjamenn hafi verið frumkvöðlar í löggjöf á neyslu hamps og að bannið á maríjúana væri komið af heilaþvætti, kreddum og kynþáttafordómum. Svona er maður nú bara grænn. Hversu mikið af þeim lögum sem við tökum sem góð og gild ætli séu til komin af eiginhagsmunahyggju og fordómum? Ég bara spyr. Ekki það að ég sé að breytast í neina frjálshyggjuskonsu... Þessa stundina finnst mér ég pínulítið hafa verið höfð að fífli að hafa trúað öllum áróðrinum um hass og gras, sem að mestu sprettur upp úr lygum bandarísks embættismanns (sem var einmitt félagi Mc Carthys) um miðja síðustu öld!!!
Ef þið viljið vita hvað ég er að fara, þá linkar Bjarni á áhugaverða grein um málið.