Enn og aftur er ég heima í kvöldmatarpásu. Ég er svo á leiðinni í sund og svo aftur á labbið að lita gel.
Carol Prives, minn proffi með meiru, hélt sína árlegu innblástursræðu á labbfundi í dag, þar sem hún talaði um að við ættum að vinna lágmark sextíu tíma á viku og að þar með væri ekki talinn tími sem færi í að skoða meilið sitt og hanga á netinu. Hún benti líka vinsamlega á það að öllum á labbinu veitti ekki af því að lesa meira. Hún er svo fyndin, því að þessi ræða kemur upp einu sinni á ári, og þess á milli segir hún ekkert um vinnulag fólks.
Reyndar kemur afskiptaleysi hennar aðeins af því að hún er svo önnum kafin í skriffinnsku af því að hún er deildarforstjóri, þannig að hún sinnir doktorsnemum eiginlega bara í lágmarkstíma. Samtal mitt við hana í dag snerist um það að hún var að segja við mig að ef ég vildi vera á labbinu hjá henni yrði ég að búast við því að þurfa að vinna mjög sjálfstætt, því hún hefur svo lítinn tíma. Þar að auki var hún ekki með neitt ákveðið verkefni handa mér til þess að byrja á, þannig að ég þarf að búa mér til doktorsverkefni. Ég verð nú eiginlega að viðurkenna að ég er pínu lost að því leytinu til, það er pínu erfitt að labba inn í nýtt umhverfi og búa sér til verkefni, sérstaklega þegar maður er bara með BS gráðu og litla reynslu af rannsóknum.
Vanesa átti þó mjög góða punkta í dag og kom með tillögur að verkefni handa mér sem ég gæti spreytt mig á, og það hljómaði mjög vel í mínum eyrum. Hún er ekki öll þar sem hún er séð kerlingin.
Núna er ég því að fara að lesa eins og ég get til þess að mynda mér skoðanir og finna mér eitthvað spennandi að bardúsa við komandi árin, en ég á enn eftir að klára rótasjónverkefnið mitt, þannig að það verður nóg að gera á næstunni.
... kominn háttatími held ég, svo að ég verði ekki úldin og fúl á morgun og næstu daga, því þessi vika verður sko megavika. Ég er að fara að gera fyrstu tilraunirnar með próteinin mín.. júhú.. og þar að auki þarf ég, ásamt prófessor Carol, að ákveða hvaða verkefni verður mitt næstu árin.
Það verður spennandi á miðvikudagskvöldið, því að þá set ég prótínið mitt útá frumurnar mínar, og svo fer ég heim að sofa í nokkra tíma og mæti svo eldsnemma á fimmtudagsmorguninn til að skola frumulufsurnar og fleira skemmtilegt. Þá verður sko unnið mikið, en föstudagurinn fer meira í að skoða spá og spekúlera í niðurstöðum.
Ég er allavegana búin að pakka stuttbuxum fyrir sjúkraþjálfun, bókum og niðurstöðum og nesti ofani poka, og svo er bara að sjá hvort að ég vakni tímanlega á morgun!