Í dag er fyrsti dagurinn síðan ég kom heim frá Íslandi í byrjun júní, að það er kaldara úti en inni. Það er búið að vera pínu hráslagalegt, rigning og suddi í allan dag. Ég er bara fegin, finnst þetta fín tilbreyting, en labbfélagarnir eru búnir að vera duglegir að kvarta. Þeim finnst ég geðbiluð að finnast þetta fínt, og meðtaka það ekki alveg að það sé sjaldan sautján stiga hiti, logn og rigning á Íslandi.