Mikið hausthljóð finnst mér nú komið í Íslendinga. Ég væri alveg til í smá haust sjálf, en það fær sennilega að bíða í mánuð í viðbót. Ég heyrði því fleygt að sumarið er búið að vera það næstheitasta frá því að mælingar hófust hér í New York. Hitinn hefur reyndar bara einu sinni náð upp í fjörutíu gráður, en það eru búnar að vera svo margar vikur í röð með þrjátíu og fimm stiga hita. Mér skilst að venjulega falli hitinn meira inn á milli. Mér hefur hingað til fundist þetta alveg fínt, en eftir hitabylgju undanfarinnar viku er ég farin að þrá haustið með sínum svala. Vetrarins hlakka ég þó ekki mikið til, frostið bítur svo hér í rakanum á Manhattan.