Bleh. Ég er gersamlega að bráðna. Það liggur við að maður þurfi tálkn til þess að anda í þessum loftraka. Guði sé lof fyrir loftkælingar. Ég held að það sé ekki tilviljun að loftkælingin var fundin upp í þessari borg, þ.e. New York. Ég sá brot úr þætti um daginn á Discovery Channel um fyrstu loftkælinguna, en hún var tekin í gagnið í Nýju Jórvík árið 1906.
Það er líka alveg dæmigert að það á ekkert að fara að rigna fyrr en á laugardaginn, akkúrat þegar við erum að fara á inni-útihátíð og þakpartí hjá honum Sigga. En enn sem komið er er þetta nú bara spá, þannig að ég er alveg viss um að það rætist vel úr. Annars er ég farin að hlakka þokkalega til inni-útihátíðarinnar, það stefnir allt í mjög ljúft laugardagskvöld.