Jeijjj!!! Vísindastarfsemi dagsins gekk eins og í sögu! Ég fékk niðurstöður úr raðgreiningu á plasmíðinu mínu og klónunin gekk upp. Þ.e. allir þrír klónarnir mínir eru réttir!
Ég hef lítið gert af raðgreiningum síðan ég vann hjá ÍE, og í þetta skiptið var reynslan svipuð og að vera föst í umferðarteppu í nokkra sólarhringa. Ekki misskilja mig, raðgreiningin sjálf fór vel fram, en svo þegar ég þurfti að skoða niðurstöðuna og bera saman við raðirnar sem ég byrjaði með, þá brást tölvubúnaðurinn algerlega. Tölvan sem var með hugbúnaðnum sem ég þurfti að nota var svo hæg að ég hefði getað ræktað kaffibaunir, tínt þær, malað og hellt upp á kaffi bara á meðan tölvan opnaði eina möppu. Tölvan sem var nógu hröð til þess að ég gæti framkvæmt úrvinnsluna á þessari öld var hins vegar ekki með hugbúnaði til þess að bera saman raðir.
Á endanum fór ég heim, hlóð gögnunum niður af netinu, bjó til tuttuguogþrjár textaskrár, hver og ein þeirra var með 300-600 bösum, og ég las þær allar yfir handvirkt til að athuga hvort að þær væru réttar!
Fyrsta röðin var rétt, hér er hún:
GGTTTCCCTCTAGAAATAATTTTGTTTAACTTTAAGAAGGAATTGCCCTTATGGAAGAGG
TGATGAGTTGGGAGGAGGCAGGCGGCCTGGCACCTCACCTGCTCTGCTGCAGGGGACAGC
AGAGGAAGACCATGTGGACCTGTCACTGTCTTGTACCCTTGTGCCTCGCTCAGGGGAGCA
GGCTGAAGGGTCCCCAGGTGGACCTGGAGACTCTCAGGGTCGAAAACGGCGGCAGACCAG
CATGACAGATTTCTACCACTCCAAACGCCGGCTGATCTTCTCCAAGAGGAAGCCCTAAAA
GGGCAATTCGAAGCTTGAAGGTAAGCCTATCCCTAACCCTCTCCTCGGTCTCGATTCTAC
GCGTACCGGTCATCATCACCATCACCATTGAGTTTAAACTATATAGAATAAAAGAAGAAA
CCTTAGCTGAGCAATAACTAGCATAACCCCTTGGACNACCTGACGGCCTCTAAACGGGTC
TTTTGCTGAAAGGAGGAACTATATCCGGATTAACGCTTACAATTTAGGTGGCACTTTTCG
GGGAAATGTGCGCGGAACCCCTATTTGTTTATTTTTCTAAATACATTCAAATATGTATCC
GCTCATGAGACAATAACCCTGATAAATGCTTCAATAATGTGAGGAGGGCCACCATGGCCA
AGTTGACCAGTGCCGTTCCGGTGCTCACCGCGCGCGACGTCGCCGGAGCGGTCGAGTTCT
GGACCGACCGGCTCGGGTTTNCCGGGACTTCGNGGAGNACNACTTCNCCGTGTGGTCNGG
CTGTTATNANCGCGTCCAGANCAGNGGNGCNGANACCCCTGGCCTGGGGNGGGGCCNGNC
TGNACAACTNACCCCANGGTCGAGTTTGTCNAACTTCGGNCCCTCGGCGNCTNACNAANG
GAAACCNGGGNGGATTCCCTGCACGCCGAATGGNNCTTGGGCGGANGATNCNTNAAGAAA
TANTTGAGGGGTTTAATNCGGNCNTTCTTNGATGNTTNTTNNNANNN
Öfundið þið mig ekki af því að vera að læra sameindalíffræði?