Gærdagurinn var fínn! Ég skellti mér í pikknikk líffræðideildarinnar. Það var gaman að hitta bekkjarfélagana aftur, en við höfum lítið hittst öll saman síðan að Core-kúrsinum sleppti. Það var mikið spjallað og eins og venjulega gerði Tim góðlátlegt grín að mér fyrir að vera Íslendingur (hann getur lítið sagt, hann er jú Bandaríkjamaður) og við Adelene og Noelia lögðum á ráðin um að skella okkur á kajaknámskeið saman og prófa að fara á kajak á Hudsonánni.
Eftir lautarferðina fór ég svo niður í bæ á bjórkvöld Íslendinga og hitti þar íslenska gengið. Hildur, Hulda, Sigga og Ísold voru í góðum gír, að Björgvin, framkvæmdastjóra Icexpress ógleymdum. Samkoman leystist þó óvenjusnemma upp og við fórum heim um eittleytið. Það var eiginlega ekki um annað að ræða en að forða sér, því það var einhver miður aðlaðandi amerískur karlmaður að abbast upp á mig, og hætti ekki þó hann vissi að ég væri gift. Honum fannst eiginlega bara hljóta að vera að ég, gifta konan, vildi einhverja tilbreytingu fyrst að ég væri ein úti að skemmta mér. Hildur sagði mér að svona væri þetta nú oft, þessir Kanar væru svo aggressífir. Ég er hins vegar nær alltaf á ferð með Merði, þannig að þá er ég alveg laus við svona vesen! Tjáh.. maður er háfvarnarlaus þegar eiginmaðurinn er í burtu!
Góðan og blessaðan daginn og velkomin á nýju bloggsíðuna okkar Marðar. Já, nú erum við laus undan oki Bloggers, og það er vonandi að nýji serverinn sé oftar uppi en Blogger og Blogspot.
Við notum forritið Movable Type til þess að skrifa færslurnar okkar, en það eru nokkrir íslenskir bloggarar sem hafa líka tekið þetta kerfi upp. Sem dæmi má nefna eru Kristján og Stella og Einar komin með MT.
Ég er mjög hrifin af þessu kerfi, það eru svo margir fídusar sem fylgja því, og margt hægt að gera. Á næstunni hef ég vonandi tíma til þess að koma upp okkar eigin myndaalbúmi og svo á ég eftir að setja RSS-ið inn aftur.
Myndin sem prýðir bloggsíðuna okkar er tekin í gönguferðinni okkar Herdísar í vor á milli Mývatns og Ásbyrgis, og er af stuðlabergi í Tröllakirkju. Mér fannst mynstrið í stuðlaberginu svo flott og alveg tilvalið í að prýða bloggið og gefa því persónulegri svip.
Við erum líka með okkar eigin heimasíðu sem ekki lætur mikið yfir sér í augnablikinu, en verður vonandi betri með tímanum. Ég hugsa að ég reyni nú að halda áfram að uppfæra á blogger líka í smá tíma, svona á meðan lesendur aðlagast tilfæringunum.
Ég vona að lesendur dagbókarinnar eigi eftir að hafa ánægju af þessum breytingum og ef þið hafið athugasemdir eða uppástungur, þá væru þær vel þegnar í ummælin hér að neðan. =)