Það er sama hvað hún Helga segir um Elliðaárdalinn, ég hlakka ýkt til þess að skokka gamla hringinn minn. Það er að segja ef ég verð ekki lurkum lamin eftir svaðilför í Mývatnssveit.
Við Herdís erum að ráðgera gönguferð á Norðurlandi þegar ég skrepp heim. Þessi gönguferð sýnist mér eiga eftir að taka hálfa dvöl mína á Íslandi en þá er bara að skipuleggja restina vel með hittingum! Herdís er með skipulagninguna í sínum höndum, enda varla annað við hæfi að menntaður leiðsögumaður skipuleggi ferðina okkar ;). Við erum að spá í að byrja að ganga á Mývatnssvæðinu og þar um kring. Reyndar hef ég heyrt að það sé mikill snjór enn fyrir norðan. Ef fólk veit eitthvað um það mál má það endilega skrifa í kommentin eða senda mér tölvupóst með upplýsingum.
Ég er mjög spennt, bæði yfir göngunni og að verja sex dögum með Herdísi, en við höfum ekki hittst síðan í haust. Mest hlakka ég þó til að borða norskan þurrmat sem Herdís ætlar að koma með af Barðanum.
Héna við hliðina á okkur í götunni er svona Frat House, þar sem er til staðar "dorm" fyrir gaura sem eru í Fraternity sigma delta, eða eitthvað þannig, í Columbia. Það fer venjulega lítið fyrir þessum drengjum. Í nótt tók þó einhver upp á því að æfa sig á trommur í kjallaranum hjá þeim í nokkra klukkutíma.. Trommuleikurinn leystist upp í brjálað rifrildi, því félagar hans fóru að öskra á hann um fjögurleytið í morgun og allt í einu kváðu við raddir víðsvegar um blokkina. Það var hávaðarifrildi í gangi langtframundir morgunn.
Mér finnst frekar fyndið að þetta gerist núna, akkúrat þegar allir eru á fullu í prófum. Ég er ekki hissa á vinum hans að hafa verið brjálaðir.
Mörður náði nú samt að sofa þetta allt af sér, ég öfundaði hann ekkert smá, en ég svaf bara frameftir, og er loksins núna að fara að drífa mig í vinnuna.
SNÓ kann að mæla áfengi..... Minnir mig skemmtilega á kúrsinn Efnagreiningu sem ég tók á fyrsta ári í lífefnafræðinni. Var ekki mjög hrifin af því þá, en það er nú alveg ótrúlegt hvað maður kíkir oft aftur í blessuðu efnagreiningarbókina.
Ég verð líka að segja að mér finnst Vísindavefurinn ein sniðugasta hugmynd sem hrint hefur verið í framkvæmd í Háskólanum á síðustu árum. Háskóli Íslands er mjög sérstök menntastofnun að mörgu leiti, og þessi vefur þjónar vel þeim tilgangi að færa skólann nær almenningi, og þar með þjónar hann landanum betur.