Fyrsta atvinnuviðtalið
Það er ansi spennuþrungið andrúmsloftið heima hjá okkur hjónakornunum núna, þar sem það var hringt í Mörð seinnipartinn í dag og hann beðinn um að mæta í atvinnuviðtal á morgun. Við settum auðvitað plan A í gang og brugðum okkur af bæ til þess að finna bindi við hæfi á kallinn. Það er nefnilega kúnst að velja bindi fyrir atvinnuviðtal, því að það verður að vera smekklegt, en alls ekki of áberandi.
Síðan við komum heim úr bænum erum við búin að "brainstorma" og reyna að láta okkur detta í hug allar mögulegar spurningar sem eru dæmigerðar fyrir svona viðtal, og svo fórum við í svona þykjustuleik, þar sem ég tók viðtal við Mörð. Það var ansi lærdómsríkt fyrir hann, því nú veit hann að hann má ekki kalla konuna sem tekur viðtalið "bitch" og það er ekki æskilegt að bora í nefið allan tímann sem maður er í viðtali. Svona að öllu gríni slepptu, þá erum við ansi spennt bæði tvö, og það er náttúrulega léttir fyrir Mörð að vera loksins farinn að fá svör við öllum þessum atvinnuumsóknum sem hann er búinn að senda út um allt.