Föstudagur, 2 nóvember, 2001
Verkefni dagsins hjá mér er

Verkefni dagsins hjá mér er að undirbúa litla ferð sem við ætlum að fara í á morgun. Stefnan er sett á Breakneck Ridge Trail. þetta er lítið og bratt fjall í klukkutíma fjarlæð frá Manhattan ef farið er með lest. Ég pantaði kort af leiðinni á netinu um daginn en þau eru ekki komin þannig að við verðum bara að finna út úr þessu sjálf, það verður gaman að sjá hvernig það gengur. Ég fékk nýja Scarpa gönguskó í útskriftargjöf frá Magga, Björgu og Inga og það verður gaman að prófa þá. Vona bara að ég komist í gegnum þetta án þess að fá margar blöðrur. Erna var í prófi í morgun og það gekk bara vel, eins og við er að búast af henni. Hún er víst að plana eitthvert djamm í kvöld með labbinu sínu, ég veit ekki alveg hvernig það fer saman með gönguferðinni á morgun. Það kemur bara í ljós.

Posted by Mordur Finnbogason at 02:20 EH